Í dag þriðjudaginn 19.júní ætlum við að skokka frá aðal
líkamsræktarstöðinni í bænum a.k.a. Sporthúsinu kl.17:59
sharp !
Fimmtudaginn 21.júní verður skokkað frá Veggsport kl.17:58 sharp
!
Lilja Björk spinning kennari, nýútskrifaður
Lögfræðingur & stuðbolti með meiru ætlar að taka vel á
móti ykkur þar 
Laugardaginn 23.júní ætlum við að gefa ykkur frí....en fyrir þá
sem vilja alls ekki taka frí mælum við með stóra Veggsport
hringnum.
Annað ... Þær/þeir sem ætla sér að taka 21 km 18.ágúst ættu að
byrja að bæta inn tveimur hlaupaæfingum í viku. Þetta ættu að vera
hringir sem eru á bilinu 5-7 km.
Ég (Gulla) kem tilbaka 12.júlí og mun því skokka með ykkur
14.júlí aftur.
Fyrir þá sem vilja er ég alveg til í að bæta við tveimur
hlaupaæfingum eftir 14.júlí fram að Reykjavíkur Maraþoni fyrir þær
sem ætla sér 21. km ....ég ætla ekki að hlaupa þetta ein, þannig að
ég vænti þess að fá félagsskap frá ykkur
Hlakka til að sjá sem flestar í Sporthúsinu á eftir og
verið nú endilega duglegar (og duglegir) að komennta hvort þið
komið eða ekki á æfingarnar hverju sinni.
Gulla